Thursday, August 31, 2006
Wednesday, August 30, 2006
Þakkir
Í allri geðveikinni og flýtunum (sem ég er fyrir löngu orðinn þekktur fyrir og er líklega minn helsti galli), þá gleymdi ég að setja inn færslu sem ég skrifaði áður en ég flutti hingað á Akureyri. Hún var skrifuð daginn áður en þann dag heimsótti ég nokkra valinkunna einstaklinga sem hafa á margan háttinn mótað líf mitt undanfarna mánuði. Sökum þess að þetta blogg-kerfi er drasl kom færslan aldrei inn en skrifa færsluna upp á nýtt hérna.
Ég er kominn í nám eftir góðar stundir á vegum 365. Þar fékk ég mína fyrstu fulla vinnu sem blaðamaður og er ég þakklátur fyrir það tækifæri. Nestorinn var mér lærifaðir í alla staði og scheindi mér oftar en nokkur hefur tölu á. Er honum mjög þakklátur fyrir en þetta eru ekki endalokin, þó ég sé að drama aðeins yfir mig, en ákveðin þáttaskil og því ekki úr vegi að þakka fyrir tækifærið. Nestorinn var lærifaðir innan sem utan vinnunnar og á sinn þátt í að móta Skaptann að því sem hann er orðinn hér í Eyjafirðinum.
Elvis er auðvitað Elvis og fær hér með þakkir fyrir að vera hress.
Sá myndarlegi scheindi mér líka en hann var duglegur að leiðbeina mér þegar ég var að stíga mín allra fyrstu skref. Toppmaður og einstaklega fær í sínu starfi en fetar nú menntaveginn eins og ég. Djöfull er ég samt að fara að scheina honum, einkunnalega séð í vetur.
Sá sem hefur þó án efa haft hvað mest áhrif á mig er þó BB. Mér leist nú satt besta að segja ekkert á þennan gaur, með hökutoppinn í Tottenham treyju með orðinu Digranes aftaná. Það tók mig nokkra mánuði að skilja Digranesið en hann var þó alltaf sá sem var hvað viðkunnalegastur nú þegar ég hugsa til baka til daganna þegar ég kjúklingur að byrja á helgarvöktum.
BB tók mig upp á arma sína á ákveðinn hátt þegar andinn var sem lægstur, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar og hefur gert mun meira fyrir mig en hann órar fyrir, það er alveg öruggt. Ég var mööööög langt niðri á tímapunkti en alltaf var hægt að stóla á manninn að taka eina eða kíkja á Brennsluna. Ég hef ekki meiri auðmýkt til að skrifa meira um BB sem hér með fær heiðursþakkir frá ritstjórn hjaltmann.blogspot.com.
Síðustu sjö mánuðir í lífi mínu hafa verið þeir bestu í lífi mínu og þetta er hluti af því fólki sem á heiðurinn af því. Aðrir taka það til sín sem þeir vilja en margir aðrir eiga þakkir skildar, þá sér í lagi fjölskyldan mín sem hefur stutt mig fáránlega í því að koma hingað Norður.
Ég segi semsagt; Takk! :)

Monday, August 28, 2006
Átakinu scheint
Skapti er ekki lengi að koma sér inn í hlutina á Akureyri og er nú byrjaður að hreyfa sig af viti aftur. Ég ætla að gera eitthvað á hverjum degi en ég er nú þegar búinn að gera einu sinni þá hluti sem ég ætla að gera, þ.e hjóla, hlaupa og synda.
Fór að hjóla um helgina, ekki skemmtilegt. Fínt að fara niður þessar brekkur hérna, en þetta er bara nánast ekkert bratt og því miður skemmtilegra að hjóla heim á leið. Þetta á þó auðvitað að vera erfitt og því mun ég halda ótrauður áfram, næst er stefnt á að kíkja áleiðis að Hlíðarfjalli, sem er geðveikt frægt fjall.
Fór að skokka í gærkvöldi. Tók ágætis rúnt og endaði hjá kirkjunni þar sem ég skellti mér í tröppurnar, Bootcamp-style. Þær eru helvíti auðveldar alveg og ég var dauður eftir þrjár ferðir og staulaðist heim. Var samt að gera gott mót.
Keypti mér eitthvað drasl til að setja iPodinn minn í sem fer síðan á upphandlegginn, sem er möst þegar maður er í þessu.
Fór svo að synda áðan, tók einhern kílómeter í aftakaveðri sem er skollið á hér nyrðra. Keypti mér líka sundgleraugu sem eru alveg laus við að vera samkynhneigð, ljósblá og svona. Þau virkuðu vel annað en þessi laug... Það er dýrt í hana, það er salt í "sundvatninu" og hún er skítug. Vonbrigði, en ég mun þó halda áfram enda gott að fara í sund.
Svo tók ég próteindrykk í morgunmat og hrærði mér KEA skyr að hætti innfæddra eftir hádegið en í því tók ég einn kaffi.
Á meðan ég greini frá þessu minni ég á að það þarf bara ekkert að scheina BB og Nestornum. Sá fyrrnefndi hefur ekki skundast í ræktina síðan á síðustu öld en er alltaf á leiðinni. Svo er hann heldur ekki í próteininu. Nestorinn þarf líka að scheina sér, aftur í próteinið dreng.

Sunday, August 27, 2006
Helgin
Það er ekki annað hægt að segja en að helgin hafi tekið ansi óvænta stefnu. Planið var að taka til, fara að versla, horfa á Liverpool og kíkja á KA-Haukar enda er maður orðinn æði fótboltaþyrstur hér í Eyjafirðinum. Gerði ekkert af þessu enda.... upptekinn. Þeir sem vita af hverju vita það, aðrir fá að vita það síðar.
Í stað þess að gera þessa hluti kíkti ég meðal annars á Menningarvöku hér á Akureyri, sem er ódýrari týpan af Menningarnótt. Komum frekar seint í bæinn en sáum eitthvað, ekkert af því skemmtilegt. Hressandi óperutónleikar samt í Gilinu, sem er brattasta brekka í heimi, þessi sem er fyrir framan Akureyrarkirkju (tröppurnar eru 95).
Svo var það Greifinn, þjóðarstolt Akureyringa, enda ekkert skrýtið. Gott kvöld og góð helgi í meira lagi! Nú er um að gera að halda í auðmýktina og halda rétt á spilunum en það er ekki annað hægt að segja en að Sjallinn hafi staðið vel undir væntingum...
Þetta bloggkerfi er drasl og ég get oft ekkert sett inn færslur og ekki myndir heldur. Spurning um að skipta um kerfi...
Helvíti langt í næsta fyllerí alveg hérna á Akureyri. Það var semsagt frítt áfengi á þriðjudaginn, fimmtudaginn og föstudaginn:
"Það þýðir ekkert að slá slöku við því að á föstudaginn ( 1 september) ætlum við halda PARTÝ!!! Við ætlum að bjóða alla nema HA velkomna ( bæði gamla og nýja) og munum við henda inn tilkynningu um stað og stund á næstu dögum.
stjórn FSHA"
Spennandi vetur framundan...

Friday, August 25, 2006
New York: Ævintýri frá fyrstu mínútu
Þá er komið að því að byrja að segja frá ferðinni til New York sem ég skellti mér í ní í byrjun ágústmánaðar. Ferðafélagi minn var hinn geðþekki Gussi Jalli en við tókum þann pól í hæðina að gista ódýrt, enda fátækir námsmenn á ferð.
Eftir flugið til NY lentum við um 19 að staðartíma en sinn tíma tók að koma sér í gegnum tollinn. Ég gleymdi að taka iPodinn úr vasanum í Leifsstöð og fékk í verðlaun gaur með latexhanska sem leitað að sprengiefni innan á Skapta sem náði ekki að taka bjór áður en í flugið var komið, sem er ekki nógu gott.
Við skelltum okkur upp í leigubíl eftir að við lentum en eins og okkur er einum lagið þá vissum við ekki hvert við vorum að fara! Við vissum nafnið á hótelinu, West End Studios, sem segir manni ekki neitt þegar maður er í NY, sérstaklega ekki leigubílsstjóra sem skilur varla ensku. Gussi vissi að hótelið var nálægt Brodway, sem segir okkur ekki mikið en sú gata er ansi löng. Við ákváðum að fara út á 90. stræti og finna netkaffihús. Það gerðum við og komumst að því að við vorum ekki langt frá hótelinu þangað sem við komumst að lokum.
Við áttum að borga herbergið við komu en þá uppgötvaði ég að ég var búinn að týna veskinu mínu!!!!!!!! Eftir klukkutíma í NY var ég ekki með veskið mitt, semsagt ekki peningana mína og kortin mín. Fokk. Ég panikkaði og Gussi gaf mér illt auga, skiljanlega. Ég notaði veskið í ísbúð þar sem við fórum á netið og ákvað að hlaupa til baka.
Við fórum út af hótelinu og ætluðum beint í ísbúðina, en ég ákvað að stökkva yfir götuna og reyna að labba sömu leið til baka og við gerðum. Á einhvern óskiljanlegan hátt þá fann ég veskið mitt á götunni fyrir fáránlega tilviljun, og í því voru allir peningarnir mínir sem og kortin mín. Eitt gott hjúkk fyrir því.
Við komum okkur inn á herbergi og það er óhætt að segja að við vorum hvumsa þegar við sáum þá ágætu kompu. "You get what you pay for," segir máltakið víst og það átti vel við þarna. Við borguðum 17 dollara, 12 kall, fyrir nóttina sem er einmitt frekar lítið. Staðsetningin var þó góð, 10 mín gangur í Central Park og eins mínútu gangur í næsta Subway, neðanjarðarlestakerfið.
Myndirnar hér gefa betri mynd af herbeginu okkar....

Thursday, August 24, 2006
Að fara í hart?
Fengum Digranesið frá Vífilfell hvað varðar Fanta Lemon eins og allir vita núna. Sendi aðra fyrirspurn í kvöld sem lesa má í kommentakerfinu fyrir síðustu færslu, en ég býst ekki við því að fá okkar framgengt, ekki frekar en þegar ég óskaði þess að fá Sprite framleitt í súperdósum.
Ef Fantað okkar er ekki til í Norður-Írlandi, þangað sem útsendari okkar er á leiðinni, þá hef ég fundið neyðarúrræðið. Það er jú, The DrinkShop.com!
Þarna er semsagt hægt að kaupa 24 litlar dósir af Fanta Lemon, þúsundkall! Spurning um að taka tvo kassa sem yrði örugglega um 5000 kall kominn til landsins?
Svo er ég alvarlega að pæla í að gera eitt, ég scheit á mig í New York og keypti ekki alveg rétt romm. Vissulega keypti ég Brugal en ekki Anejo, sem er hið eina sanna.... Hérna er hægt að kaupa það, lítersflösku á 1600 kall...
Spurning hvort Nestorinn og ég förum ekki bara í málið?

NEEEEEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
RE: Vífilfell: Almenn fyrirspurn
Sæll Hjalti,
Já það er því miður hætt að framleiða Fanta lemon.
Kveðja,
Díana
_____________________________
Klárlega vonbrigði dagsins... Þá verðum við að treysta á
að þetta fáist í Norður-Írlandi en þangað verður sendur
maður, sérstaklega í
leit að Fanta Lemon.
Ég er hneykslaður.
Wednesday, August 23, 2006
Fanta Lemon
"Kóka Kóla, Fanta Lemon, Sprite" - sagði í góðu lagi einhverntíman. En hvar er Fanta Lemon í dag???? Er þaðófáanlegt á Íslandi? Eins og dyggir lesendur vita þá er sá mæti drykkur nauðsynlegur til að blanda rommið góða Brugal.Nú höfum við Nestorinn verið að leita að Fanta Lemon í nokkurn tíma. Útsendari verkefnisins fór sérstaklega til lands gosdrykkjanna, Bandaríkjanna, í leit að romminu og Fanta Lemon. Brugalið fannst en þrátt fyrir dauðaleit í hverri kjörbúð í New York ríki fannst Fantað ekki.
Verið er að undirbúa annan útsendara en hann verður sendur til Evrópu, nánar tiltekið til Norður-Írlands í næstu viku en þar eru verkefnisstjórar að gera sér vonir um að finna drykkinn. Ef ekki þá erum við í vondum málum og gætum þurft að sérpanta nokkrar flöskur frá Spáni, þar sem drykkurinn er til.
Ég hef sent fyrirspurn á Vífilfell, framleiðanda drykksins, og vonast til að fá svar fljótlega. Um leið og það berst verður það birt hér á síðunni en ef einhver hefur rekist á Fanta Lemon nýlega má hann láta vita í kommentakerfinu. Þess má geta að samkvæmt heimasíðu Vífilfells er drykkurinn enn til.
Akureyri
Það er ekki hægt að segja annað en að maður sé að koma sér vel fyrir á Akureyri. Systir mín keyrði mig hingað á laugardagskvöldið og þar með er ég endanlega fluttur Norður, í fyrsta skipti sem ég flyt að heiman.
Fór í skólann á mánudaginn þar sem Nýnemavika byrjaði. Þar var verið að kynna okkur skólann, starfið og svo framvegis. Sá tvö kunnugleg andlit en annars er auðvelt að kynnast fólki, sérstaklega þar sem mér sýnist svo sem það verði fyllerí hérna í það minnsta tvisvar í viku.
Það fyrsta var í gær þegar deildin mín hittist á Strikinu, sem ég þurfti að spyrja tvisvar hvar væri enda rata ég ekki neitt. Fyrir ykkur sem þekkja til vita alveg að ég hata ekki beint þegar frír bjór er í boði og Vatnslásinn var í S-inu sínu. Klukkan tíu komu svo allir nýnemarnir þangað og það er óhætt að segja að bjórinn hjálpar fólki við að kynnast.
Gott kvöld sem átti að enda með Rockstar-partýi heima hjá mér, var mér sagt. Það gerðist þó ekki. Ég endaði hinsvegar á Kaffi Akureyri þar sem verið var að loka áður en ég staulaðist heim. Er einmitt á Kaffi Akureyri núna enda er ég ekki kominn með netið heim, það gerist vonandi í dag eða á morgun þó.
Piparsveinalífið er gott. Íbúðin, sem verður kynnt til sögunnar með myndum fljótlega, er stórkostleg og það er ekki annað hægt að segja en að maður lifi í vellystingum hérna. Ég er ekki að gera slæma hluti í uppvaskinu, vopnaður gulum uppþvottahönskum auk þess sem ég er búinn að þvo tvisvar - eitthvað sem ég hef aldrei gert áður!
Helvíti langt í næsta fyllerí alveg. Á föstudaginn byrjum við klukkan tvö þegar farið verður í Kjarnaskóg þar sem keppt verður í drykkju að mér skilst. Svo um kvöldið er eitthvað Pub Quiz á Sjallanum sjálfum. Á örugglega bara ekkert eftir að vera fullur hérna......
Um helgina er svo Akureyrarvaka að mér skilst. Það svipar víst til Menningarnætur og það er nokkuð ljóst að maður þarf að bæta upp fyrir að hafa misst af henni í Reykjavík. Skólinn byrjar svo á mánudaginn og þá verður lífið væntanlega erfiðara en það er frí í dag og á föstudaginn í skólanum auk þess sem ég þarf að mæta í klukkutíma á morgun...
Annars verður mikið um að vera hérna á Hjaltmann.blogspot.com á næstunni. Ekkert hefur enn komið um New York ferðina, miklu meira um Akureyri á eftir að koma auk íbúðarinnar.
En þangað til næst...
Friday, August 18, 2006
Back
Yeasch. Kominn aftur frá USA og eru nokkrar ferðasögur væntanlegar. Þarf fyrst að komast "heim" á Akureyri þar sem snúran fyrir myndavélina er þar og ferðasögur eru ekkert án mynda. Nokkrar góðar sem leynast þar...
Lentum í morgun við Gussi ásamt einhverjum 30 Chippendales dönsurum sem spurðu hvort þeir ættu að eyða tíma í Bláa Lóninu á milli sýninganna sinna hér á landi eða ekki. Þrátt fyrir hið augljósa þvertóku þeir fyrir að vera samkynhneigðir... einmitt. Sat reyndar við hliðina á einum þeirra í flugvélinni og hann hreinlega missti sig yfir snotri flugfreyju á leiðinni heim. Ég sagði honum að hún væri á svipuðum kaliber og meirihlut íslensks kvenfólks. Svipurinn á honum var stórkostlegur.
Þar sem einhverjir hryðjuverkamenn ákváðu að taka Die Hard 3 á þetta (sem gerist auðvitað í NY og ég þarf klárlega að horfa aftur á eftir ferðina) með því að reyna að sprengja upp flugvélar með því að blanda saman tveimur vökvum þá mátti varla taka með sér handfarangur í vélina. Ég var með tvær flöskur af Brugal romminu, sér færsla um það væntanlegt, og rakakrem og eitthvað karlmannlegt. Hún hélt nú ekki frænka mín á flugvellinum og því pökkuðum við Gussi á nýjan leik í töskurnar okkar. Komumst klakklaust heim að lokum.
Ég fékk tíma í klippingu þegar ég kom heim en skeit á mig. Svaf til sex frá tólf eftir að hafa vakið í 30 tíma og svona. Skellti mér því á Leiknisleikinn í Hafnarfirði. Sá ekkert mark þar. Síðasti Leiknisleikurinn sem ég sé í sumar...
Akureyri á laugardaginn svo - endanlega.

Wednesday, August 02, 2006
Jáááhhhhh
Ég lofaði myndum og stend hér með við mitt. Þessi stórkostlega mynd er tekin heima hjá Nestornum á föstudagskvöldið þar sem ég er með títtnefnt romm mér við hlið í Fanta Lemon. Þess ber að geta að ég var bara ekkert fullur og man allt sem gerðist þetta kvöld.
Við Elvis hötum nú ekkert að bola yfir okkur og þá sérstaklega ég. Myndin sem ég held á er af Jüssi Jaskilinen, Elvis, Sami Hyypia og Jimmy. Tekin í Players Lounge á Reebok vellinum þar sem við Elvis vorum ekki að gera slæma hluti með stjörnunum í Bolton...Aðrar myndir sem bárust síðunni þóttu ekki birtingarhæfar almenningi.
Miðnæturgolf
"Ég held að þetta sé fyrsta parið mitt síðan ´93, án gríns. Ég er í skýjunum með þetta og þetta er langt fyrir ofan mínar væntingar," sagði E. Stefán eftir miðnæturgolf okkar á Hvaleyrarvelli í kvöld. Nestorinn beilaði og þarf að scheina sér fyrir það.
Ég og E tókum heilar fimm holur en þá var orðið svo dimmt að sást einmitt ekki neitt. Ég týndi þremur kúlum, sem er ákveðið afrek á fimm holum, þar af einni par 3 holu. Á henni náði E einmitt glæsilegu pari en eftir fallegt upphafshögg var hann nálægt því að ná fuglinum og setti stutt pútt ofaní fyrir parinu. Vel að verki staðið hjá E.
Ég þótti slá ágætlega en var of villtur og týndi kúlum í hrönnum. E spilaði þetta af öryggi og týndi engum bolta en báðir vorum við í ruglinu á tímabili. Ég var mjög nálægt því að fara úr axlarlið þegar ég leit á Álverið áður en ég sló þéttingfast í jörðina. Það var ekkert sérstakt.
Tölur okkar frænda verður ekki gefið upp en ljóst er að þetta kveikti golfneistann í okkur báðum á nýjan leik. Ég hafði ekki spilað í tvö ár og hann sex.... til að hafa það á hreinu þá vann ég samt en gott að byrja að stunda þessa íþrótt núna aftur vikuna sem ég er að flytja allt draslið á Akureyri, fer síðan til New York (meira um það síðar) og síðan flyt ég beint norður.
Á morgun eru væntanlegar myndir úr partýi Nestorsins en þess má geta að boðið verður upp á túlípana- og bolamynd af bestu gerð.

Sunday, July 30, 2006
Helgin
Fyrsta verkefnið á morgun er að hringja í helvítis Evrópumeistarann og sendast eftir meira rommi... Ég smakkaði besta drykk í heimi á föstudaginn en hann á sér nokkra forsögu.Fyrir nokkrum vikum fór Nestorinn í eina af "vinnuferðunum" sínum ytra, nú ákvað hann að skella sér í sólina á Spáni. Þar fór klakabjórinn mikinn en helstan ber að nefna rommdrykk einn sem sló heldur betur í gegn hjá þeim frændunum. Hann er borinn fram í stóru glasi á fæti, stútfullu af klökum, ásamt rommi og leynivopninu, Fanta Lemon.
Nestorinn var nú ekki að hata drykkinn og Vatnslásinn var orðinn æði spenntur. Nestorinn fer svo aftur til Spánar og heldur áfram í romminu. Vegna fjölda áskoranna tók hann með sér eina flösku heim og jú, fjóra lítra af Fanta Lemon sem er ófáanlegt a Íslandi að mér skilst. Hefur spennan verið mikil enda er Vatnslásinn annálaður sælkeri sem er búinn að bíða spenntur eftir romminu.
Loksins loksins, á föstudagskvöldið efndi Nestorinn til veislu í heimahúsi sínu, og eftir grill (sem Skapti hefur líka beðið lengi eftir þar sem Nestorinn montar sig bara ekkert mikið af grillhæfileikum sínum (hann má eiga að maturinn var virkilega góður)), var rommið dregið fram. Fyrsti sopinn var ágætur en um leið og sopi númer tvö var teygaður var ekki aftur snúið. Án efa besti drykkur sem ég hef smakkað og þrátt fyrir miklar væntingar þá stóðst hann þær svo sannarlega.
Heima hjá Nestornum var kominn saman fríður hópur af mógúlum sem skemmstu sér konunglega allt kvöldið og fá hér með þakkir fyrir það, þá sérstakega heimalingurinn. Stórkostlegt kvöld sem var toppað með romminu.
Auðmýktin var fyrirferðamikil en hún var einmitt þema kvöldsins. BB bauð upp á mynd sem að ég held sjö manns hafa séð en orð fá henni ekki lýst. Vig var með skemmtilegar sögur af sér og sínum þræl eðlilega vinahóp en Nestorinn bauð upp á TV-debutið sitt. Skeit aðeins á sig en nokkuð gott miðað við "21" árs gamlan strák eins og hann hélt fram. Ég og Elvis buðum upp á bolamyndir eins og okkur einum er lagið en ég gerði dauðaleit að Bergsson #4, Bolton treyjunni minni sem er árituð á báðum hliðum. Eftir á að hyggja hefði ég viljað sjá nýja blekið hans BB og Before and After myndir Nestorsins.
Fór svo á ættarmót á laugardaginn - ágætt.
Friday, July 28, 2006
TV
Dýnamískur Hjaltmann NFS-aði yfir sig í gær. Fór á leik Vals og Bröndby í Laugardalnum og fyrr um daginn bað Bóasinn Nestorinn um að taka viðtöl uppi á Skaga. Ekki nennti hann því, þrátt fyrir að leikurinn væri klukkan 18 og hann væri með minnsta plássið, neibb hann bendi á Skaptmann sem tók verkefninu fegins hendi.Það var lítið mál að scripta, taka niður hvað gerðist á hvaða mínútu, enda þegar hluti af starfinu. Það var ekki laust við að það væri smá kvíði í Vatnslásnum þegar hann hóaði í WÞÞ eftir leik. Ekki eru nema nokkrir dagar síðan hann tók Bóasinn gjörsamlega af lífi í beinni útsendingu (jafnast reyndar ekkert á viðtalið hans Benna við Óla Þórðar, en það er allt önnur
saga.)
Bolurinn ég tók utan um Willum og blaðraði eitthvað og auðvitað bað ég hann um að sýna mér skilning, þetta var jú mitt fyrsta verkefni fyrir sjónvarpið. Skeit á mig og baðst vægðar eins og fífl, en ég fór amk í góðvin minn W, eitthvað sem Nestorinn hafði spáð fyrir að ég myndi ekki þora. Viðtalið gekk ágætlega, var reyndar aaaaaalltof langt og ég endurtók mig og eitthvað.
Svo var komið að döbbinu. (Fyrir ykkur leikmennina þá er það þegar maður les yfir myndirnar það sem gerðist í leiknum (skrifar hann alveg hrokalaust og þrælvanur (langar að gera svona kaldhæðnisbroskall hérna))). Skeit á mig þar. “Scheindu þér fyrir þessa málfræðifeila” voru skilaboðin frá læriföðurnum sem tók mig aðeins í gegn. Það er alveg rétt, var í ruglinu. En samt, one take.
Heilt yfir held ég að þetta hafi verið í lagi fyrir bolinn en ég, sem yfirbolur, er ekki alveg nógu sáttur með mína eigin frammistöðu (til að klisja bara ekkert yfir mig). Hefði viljað vera ákveðnari og beita ekki endalausum málfræðivillum sem voru ekki að koma sterkar inn. Fékk samt hrós frá Benna sem er auðvitað gott.....
Viðbrögð minna dyggu lesenda:
Nestorinn gaf mér það hrátt og sagði mér að ég hefði skitið í mig, sagði mér að scheina mér og að ég hefði ekki verið neitt spes. Sagði síðan að ég hefði verið ok. BB sagði að þetta hefði verið fínt hjá mér, mjög líklega af því ég hrósaði honum í hástert þegar hann var að skíta upp á bak þegar hann las íþróttafréttirnar hérna öll völd. Unnusta hans sá þetta ekki en sagði að ég hefði staðið mig vel. Takk fyrir það.
Elvis gerði grín að mér en sagði að þetta hefði verið ok. Hann tók undir orð Nestorsins um scheininguna. WÞÞ sjálfur sagði að þetta hefði verið fínt hjá mér, ánægður með það. Myndatökumaður Rúv sagði að þetta hefði verið gott. Hann er því maður kvöldsins.
Annað kvöld verður partý ársins heima hjá Nestornum. Þangað hefur öllum helstu stjörnum samtímans verið boðið en það ætlar heimalingurinn að elda grænmetisbuff og bjóða upp á freyðivín. Heyrst hefur að vig verði helltur haugfullur og dreginn í ævintýramennsku í bænum. Get ekki beðið.
Wednesday, July 26, 2006
Ég og dulnefnin

Ég hef verið kallaður nokkrum viðurnefnum í gegnum tíðina... hef kallað mig sjálfan nokkrum af þessum nöfnum sem er ekki úr vegi að kíkja aðeins á.
Hjaltmann: Ég kom með þetta viðurnefni sjálfur þegar ég skráði mig á Liverpoolspjallið fyrir mörgum árum. Vildi ekki heita bara Hjalti og datt þetta í hug. Ekki margir sem kalla mig þetta í dag þrátt fyrir það, Gussi dettur í það en það er hugsanlegt að notkun þess aukist eftir að bloggið fékk þetta nafn.
Skapti: Ég geng iðulega undir þessu nafni í vinnunni þessa dagana. Þannig var mál með vexti að ég var að taka viðtal við Heiðmar nokkurn Felixsson, ég hringdi í hann og talaði við í nokkrar mínútur eftir að hafa kynnt mig með nafni eins og hefðin er. Ég fékk hann síðan til að senda ,mér einhverjar myndir af sér og e-mailið hans var á þessa leið:
“Sæll Skapti. Hér eru myndirnar. Kveðja, Heiðmar.”
Vakti þetta mikla kátínu og nafnið var ekki lengi að festast við mig.
Vatnslásinn: Myndin hér efst gefur þetta viðurnefni til kynna. Það var eitthvað Fréttablaðs eða 365 partý á Hressó sem ég að sjálfsögðu kíkti í, enda frítt áfengi og svona. Ég var að vinna fram á kvöld og var því að drífa mig í því að ná öllum í drykkjunni og eftir sturtubjórinn, einn til og svo annan á leiðinni niður í bæ kom ég á Hressó. Skellti tveimur í mig og settist hjá BB og Nestornum. Með áhálfan bjór í hendi fékk ég mér einn sopa og ákvað að ég þyrfti annan, enda frír bjór. Á leið minni á barinn skellti ég restinni í mig með einum sopa við mikil fagnaðarlætri viðstaddra sem sprungu úr hlátri..... Vatsnlásinn á ekki í erfiðleikum með að opna fyrir þegar bjórinn er annars vegar, svo mikið er víst.
ATH: Má einnig nota á eftir orðinu skapti, e. Skapti Vatnslás.
Jimmy og Túlípaninn (Jimmy the tulip): Jááááááhhhhh..... Eftirminnileg saga. Það var árshátíð 365 og Skapti var ekkert að spara það í drykkjunni. Haugdrukkinn skellti ég ÖLLU í mig sem á vegi mínum varð, enda allt frítt. Hvítvín, rauðvín, bjór ofl ofl. Mér er sagt að ég hafi verið hrókur alls fagnaðar og Nestorinn ætlaði ekki að trúa því að ég dytti ekki áfengisdauður niður eftir allt magnið sem ég innbyrði. Þarna tók ég mig líka til og borðaði ekki einn, nei heldur tvo túlípana!!!! Þannig kom Túlípaninn til sögunnar og skömmu síðar Jimmy the Tulip eftir karakternum geðþekka sem margir kannast við.
Þórarinsson (Hjaltmann Þórarinsson): Nokkrum dögum eftir að ég hætti sem ritstjóri á heimasíðunni Fótbolti.net fór ég samt sem áður í viðtal til að redda Steina Gunn sem ótrúlegt en satt var í einhverjum vandræðum með að finna efni. Ég fór í þáttinn með Magga litla og var í sminkinu þegar Steini spyr Magga hvað við heitum. Maggi er svo lítill að hann bar nafnið mitt
ofurhratt fram og í staðinn fyrir Þór Hreinsson varð Þórarinsson sem síðan kom á skjáinn í viðtalinu. Svo ég vitni líka í Elvis þá “Hjalti Þór Hreinsson gengur undir dulnefninu Hjalti Þórarinsson í þessu viðtali á NFS og er þar að auki málaður eins og frönsk hóra til að blekkja áhorfendur.”
Rétt.
Viðtalið má sjá hér...
Monday, July 24, 2006
Hringnum lokað - Bolamynd #3
Jæja, þá er komið að síðustu en ekki sístu myndinni í bolaseríunni minni, í það minnsta ekki að mínu mati. Líkt og hinar myndirnar snúum við okkur að myndum sem teknar voru í heimsborginni Barcelona á síðasta ári.
-----------------------------------------------------------
Úfffffffff.............. Hvað var ég að pæla? Ég flagga þarna forlátum sólgleraugum og er fyrir framan einhverja fáránlega og forljóta styttu! Hvað fór í gegnum huga minn þegar ég óskaði eftir því að þessi mynd yrði tekin af mér skal ósagt látið en að sjálfsögðu fékk túlípanabrosið að fljóta með. Til að toppa allt er ég jú, í Barcelona treyjunni minni, í Barcelona. Það gerist ekki mikið meira bolalegra en þetta takk fyrir...

Sunday, July 23, 2006
Bolamyndasyrpan heldur áfram og við erum enn stödd í Barcelona. Eins og ég greindi frá í gær ætla ég að birta þrjár góðar bolamyndir af mér og þessi er númer tvö í röðinni....
-----------------------------------------------------
Mynd 2: Þessi mynd er skemmtileg fyrir nokkra hluta sakir. Hún er tekin fyrir framan bar í Barcelona þar sem við vorum að horfa á Real Madrid-Barca á risaskjá, það komust semsagt færri að en vildu. Eina stelpan í hópnum er EKKI að horfa á leikinn, kemur á óvart? Þrír hlutir sem gera mig að góðum bol á þessari mynd, buxurnar, bæklingurinn sem ég er með í buxnavasanum og þess myndavélataska!!!! Hvað er málið með hana??? Jæja...

Saturday, July 22, 2006
Það verður seint sagt um Skapta að hann sé ekki bolur, mýmörg dæmi eru um það. Hvort sem það séu frægir knattspyrnumenn í símaskránni eða faðmlög við stjörnurnar í bænum um helgar. Ég ætla á næstu þremur dögum að birta bolamyndir miklar sem allar voru teknar í Barcelona (greinilega mikið af eðal myndum úr þeirri ferð?)
-----------------------------------------------------
Mynd 1: Bolurinn fer til Barcelona og það fyrsta sem hann gerir er að heimsækja La Sagrada de Familia og jú, með túlípanabrosið.

Friday, July 21, 2006
Eftir mikla pressu hef ég ákveðið að hefja bloggferil minn snemma þetta árið. Án þess að hafa auglýst síðuna nokkuð hef ég þegar fengið kvartanir að ofan og því verður maður að gera eitthvað...
Semsagt, planið næsta mánuðinn, fyrir flutning minn á Akureyri er eitthvað á þessa leið:
20. júlí - 7. ágúst: Vinna ALLA daga (takk Henry)
8. ágúst: Fara til New York í átta daga með Gussa Jalla. Þar er stefnan á að vera menningarlegur og fullur. Sé mig jafnvel fyrir mér að láta taka mynd af mér fyrir framan Frelsisstyttuna, í ´I Love NY´ bolnum og með bjór við hönd.
17. ágúst: Komið heim frá New York og byrjað að pakka (Sjálfboðaliðar mega senda mér mail)
18. eða 19. ágúst: Haldið norður með Árna sem ég hef þegar leigt í að flytja með mér norður. Hann mun sjá um að bera það þyngsta meðan ég undirbý klakabjórinn áður en fyrsta Akureyrardjammið fer fram um þá helgi. Árni keyrir svo bílinn til Reykjavíkur á meðan ég standset íbúðina sem verður mjög í anda "Herbergis 3 í IKEA". Held að ég þurfi að gefa Árna eitthvað fallegt... kippa af bjór er líklegast eins og staðan er í dag.
21. ágúst: Hef nám í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri.
Það er að ansi mörgu að hyggja þegar maður flytur í fyrsta skipti að heiman og það eitthvert lengst út á land. Fjör að mamma og pabbi ákváðu að kaupa íbúð á Akureyri sem ég mun svo leigja af þeim en Vatsnlásinn er nú þegar farinn að hafa áhyggjur af nokkrum hlutum:
- Ég kann ekki að elda. Þegar ég segi það þá meina ég að ég kann ekki að sjóða pasta né hrísgrjón, ég kann ekki á bakarofn og ég hef sjaldan eldað fyrir mig einan. Vissulega kann ég að grilla en mun ekki hafa grill fyrir norðan. Sé það breytast á jólagjafalistanum.
- Ég kann ekki að fara með peninga. Ég eyði alltaf í eitthvað helvítis rugl sem ég hef enga þörf fyrir. Fokk hvað ég á eftir að klúðra þessu!
- Ég þekki engan á Akureyri. Gæti verið hressandi en ég held að málið sé að stunda Sjallann bara grimmt til að kynnast fólki?
- Ég kann ekki að þrífa. Jújú, vissulega get ég ryksugað en að skúra og setja í þvottavél?? Að skúra er verkefni fyrir pabba á jólunum og að setja í þvottavél er eitthvað sem ég á eftir að klúðra. Trúið mér, ég má ekki við því að öll fötin mín litist bleik.
Á Akureyri ætla ég að komast í form lífs míns (setning sem hljómar mun betur á ensku). Ég ætla að skokka yfir mig og synda (komdu bara með það - hbg) og svo mun ég fara allar mínar ferðir gangandi þar sem bílar eru fyrir þá sem hafa efni á þeim. Auk þess sé ég fyrir mér að ég borði próteindrykk í morgunmat, hafragraut í hádegismat og svo Knorr bollasúpur í öll önnur mál. Hlakka til. Ég mun ekki hafa Bootcamp lengur sem verða vonbrigði.
Þessari færslu er formlega lokið en ég neyðist víst til að halda þessu gangandi þar til ég fer...
Jimmy
Opnað almennilega fyrir Vatnslásinn í Barcelona...